Fjarnámskeið

TRAS og grunnskólinn

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 13. okt. kl. 13:00 - 16:00

3 klst.

Álfhildur E Þorsteinsdóttir

Hrafnhildur Karlsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 26.900 kr.
Snemmskráning til og með 3. október. Almennt verð er 29.600 kr.
Námskeið

Á námskeiðinu fá grunnskólakennarar kynningu á TRAS málþroskaskráningu sem gerð er í leikskólum. Farið er yfir hvernig nota má niðurstöður TRAS skráninga við gerð kennsluáætlana, við val á málörvunarefni og kennslufræðilegum leiðum fyrir nemendur sem víkja frá í málþroska og lestri.

Þátttakendur fá innsýn í hvernig má setja upp stutta kennsluáætlun og hvaða þætti þarf að byrja á að vinna með út frá niðurstöðum TRAS skráningar. Einnig verður fjallað um þætti í TRAS sem beinast að athygli, einbeitingu, tjáskiptum,
samskiptum, samleik og félagsfærni og hvernig veikleiki á einum þætti getur haft áhrif á aðra þætti þroskans. Niðurstöður TRAS skráningar gagnast vel þegar unnið er með öllum börnum, sérstaklega við gerð námsáætlana vegna barna með málþroskaröskun, seinkun í málþroska, börnum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og börnum með ADHD.

Þátttakendur fá einnig innsýn í hvernig kennari getur gert námsumhverfið í bekkjarstofunni/svæðinu enn meira hvetjandi með því að rýna í uppröðun í stofunni/ á svæðinu með það að markmiði að auka einbeitingu og athygli nemenda og minnka truflun. Skoðað er hvernig myndræn og rituð skilaboð og vísbendingar auðvelda nemendum að skilja og fylgja eftir fyrirmælum.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Færniþættina sem TRAS skráning byggir á.
  • Hvernig lesið er úr niðurstöðum og hvar ætti að leggja áherslu út frá niðurstöðum.
  • Hvernig niðurstöður eru nýttar til að mæta nemendum enn betur þar sem þeir eru staddir.
  • Gerð kennsluáætlunar / einstaklingsáætlunar fyrir einstakling eða hóp.
  • Hvernig nota má námsumhverfið til að auka einbeitingu og athygli, skilja fyrirmæli og minnka truflanir.

Ávinningur þinn

Að loknu námskeiði getur kennarinn lesið úr TRAS skráningu nemanda, kennarinn hefur meiri innsýn í stöðu barns/hóps sem auðveldar honum að finna leiðir í námi og lestri. Einnig getur kennari séð hvernig barni gengur í öðrum þáttum sem lúta að félagslegri hæfni og námi.

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar vel fyrir grunnskólakennara, sérkennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa og aðra þá sem vinna með nemendum á yngsta stigi grunnskóla.

Nánar um kennara

Álfhildur Þorsteinsdóttir er með BA í Íslensku og M.Sc. í Talmeinafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem talmeinafræðingur frá árinu 2012 og starfað í skólaþjónustum á Suðurlandi við ráðgjöf og greiningar einnig hefur hún starfað við talþjálfun leik- og grunnskólabarna. Álfhildur hefur haldið fjölda erinda um málþroska leik- og grunnskólabarna í
gegnum störf sín. Núna starfar Álfhildur sem talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Suðurlands á Selfossi og kennir námskeiðið TRAS - skráning á málþroska ungra barna hjá Endurmenntun HÍ.

Hrafnhildur Karlsdóttir er leik- og grunnskólakennari, með framhaldsnám í stjórnun menntastofnana og hefur langa kennslureynslu í leikskólum. Hún hefur starfað í skólaþjónustum á Suðurlandi sem sérkennslu- og einhverfuráðgjafi í leik- og grunnskólum, kennt fjölda námskeiða fyrir kennara og foreldra og kennir námskeiðið TRAS- skráning á málþroska ungra barna hjá Endurmenntun HÍ.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

TRAS og grunnskólinn

Verð
26900