Staðnámskeið

Madeira - Eyjan sígræna

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 21. okt. kl. 19:00 - 22:00

3 klst.

Guðlaug Rún Margeirsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 21.900 kr.
Snemmskráning til og með 12. október. Almennt verð er 24.100 kr.
Námskeið

Á þessu námskeiði verður farið í fræðandi og aðgengilegt „ferðalag“ um Madeira – gróðursæla, litskrúðuga og vinalega eyju í miðju Atlantshafi. 
Þátttakendur fá innsýn í sögu, menningu og daglegt líf íbúa eyjunnar, auk þess sem farið verður yfir náttúrufar, sérstaka staði og það sem gerir Madeira að svo eftirsóknarverðum áfangastað.

Kennslan byggir á lifandi frásögnum, myndrænni framsetningu og opnum umræðum – þar sem áhersla er lögð á að virkja þátttakendur og kynna þeim þessa töfrandi eyju á persónulegan hátt.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Sögu eyjunnar
  • Menningu og daglegt líf íbúa
  • Náttúru, gróður og loftslag
  • Staðarhætti, bæi og merkisstaði
  • Áhugaverðar gönguleiðir og garða
  • Hefðir, matarvenjur og hátíðir 

Ávinningur þinn

  • Aukinn skilningur á menningu og náttúru Madeira
  • Þekking á áhugaverðum stöðum og gönguleiðum
  • Aukin tilfinning fyrir sögu og samfélagi eyjunnar
  • Hvati og innblástur til að heimsækja Madeira

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á ferðalögum, menningu og náttúru. Sérstaklega þeim sem hafa áhuga á að heimsækja Madeira og vilja kynnast nýjum menningarheimi. Engar forkröfur.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendum er frjálst að koma með tölvu eða bók til að taka glósur.

Nánar um kennara

Guðlaug Rún Margeirsdóttir, þýðandi og bókmenntafræðingur. Hún bjó stóran hluta ævi sinnar í Portúgal og þekkir land og þjóð í krók og kima.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Madeira - Eyjan sígræna

Verð
21900