

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 7. og fim. 9. okt. kl. 9:00 - 12:00 (2x)
Björg Magnúsdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á þessu námskeiði er farið yfir landslag fjölmiðla og ólík form miðla og viðtala sem krefjast mismunandi undirbúnings. Fjallað er um strategíu gagnvart fjölmiðlum; hvaða tónn, orðaval, upplýsingar og stemning er viðeigandi hverju sinni og hvað gerist eftir viðtal?
Námskeiðið inniheldur fyrirlestra með praktískum ráðum, raunveruleg dæmi úr íslenskum fjölmiðlum og hagnýtar æfingar. Markmiðið er að þátttakendur fái aukið öryggi og þekkingu í samskiptum við fjölmiðla sem skilar sér í skýrari skilaboðum og bættri framkomu.
Námskeiðið er hugsað sem hagnýt þjálfun fyrir þá sem koma fram reglulega fram í fjölmiðlum og vilja bæta sig.
Björg Magnúsdóttir er stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hóf störf í fjölmiðlum fyrir tveimur áratugum og hefur m.a. unnið á Blaðinu, 24Stundum og Pressunni. Síðasta áratug starfaði hún á RÚV sem fréttamaður á fréttastofu, umsjónarmaður Síðdegisútvarpsins og Morgunkaffisins á Rás 2, kynnir í Söngvakeppninni, fjölmörgum beinum útsendingum, Kappsmálum o.fl. Björg starfaði einnig sem aðstoðarmaður borgarstjóra og í handritagerð en hún er einn af handritshöfundum fyrstu seríu Ráðherrans, Systrabanda og Vigdísar.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.