Staðnámskeið

Sköpum okkar eigin velferð

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 10. og 17. nóvember kl. 16:30 - 19:30

6 klst.

Steinunn Ragnarsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 36.900 kr.
Snemmskráning til og með 1. nóvember. Almennt verð 40.600 kr.
Námskeið

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur ýmsum gagnreyndum og hagnýtum aðferðum til þess að efla eigin velferð. Markmið námskeiðsins er að auka innsýn þátttakenda í helstu þætti sem hafa áhrif á velferð okkar og hvernig við getum nýtt okkur þekkinguna á jákvæðan hátt.

Á námskeiðinu verða tvær vinnustofur. Önnur til þess að greina styrkleika, en rannsóknir sýna að þau sem þekkja styrkleikana sína og nota þá meðvitað eru margfalt líklegri til þess að upplifa hamingju. Hin vinnustofan er með LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni sem kallar fram hugmyndir og skapandi lausnir við ýmsum áskorunum, sem þátttakendur geta nýtt sér í lífi og starfi.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Styrkleika og ýmsar gagnreyndar aðferðir m.a. úr smiðju jákvæðrar sálfræði.
  • Hvernig við getum notað skapandi leiðir til þess að kalla fram hugmyndir og lausnir.
  • Hagnýtar aðferðir við persónulega stefnumótun, markmið og mótun viðhorfs.

Ávinningur þinn

  • Aukin sjálfsþekking og þrautseigja.
  • Innsýn í leiðir til þess að auka eigin velferð.
  • Þekking á eigin styrkleikum og notkun þeirra.

Fyrir hverja

Námskeiðið nýtist öllum sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á vísindalega viðurkenndum aðferðum til þess að auka velferð sína og rækta eigin sköpunarkraft og gleði.

Nánar um kennara

Steinunn Ragnarsdóttir hefur verið meðal leiðandi stjórnenda í menningarlífi landsins um árabil. Árið 2018 lauk hún þriggja ára Fellowship námi í skapandi stjórnun og stefnumótun frá háskólanum í Maryland og Executive Leadership námi frá Harvard Business School árið eftir. Steinunn hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og starfar sem alþjóðlegur ráðgjafi og leiðbeinandi. Hún hefur viðurkennd starfsréttindi í LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni og kemur reglulega fram á ráðstefnum þar sem hún tekur þátt í umræðum og heldur erindi m.a. um skapandi leiðir til velferðar og árangurs.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Sköpum okkar eigin velferð

Verð
36900