

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 10. og 17. nóv. kl. 16:30 - 19:30 (2x)
Steinunn Ragnarsdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur ýmsum skapandi aðferðum til þess að efla eigin frumkvæði og sköpunarkraft. Markmið námskeiðsins er að kynna ýmsar áhrifaríkar leiðir til þess að auka sjálfsþekkingu og virkja eigin styrkleika sem nýtast í breytingaferli hvort sem er í lífi eða starfi.
Á námskeiðinu verða tvær vinnustofur. Sú fyrri til þess að greina styrkleika, en rannsóknir sýna að þeir sem þekkja styrkleika sína og nota þá með farsælum hætti, eru margfalt líklegri til þess að upplifa velgengni og hamingju. Seinni vinnustofan er með LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni. Það er skapandi aðferð sem kallar fram hugmyndir og lausnir við ýmsum áskorunum með því að virkja innsæi og ímyndunarafl.
Námskeiðið nýtist þeim sem eru að íhuga eða búa sig undir breytingar og þeim sem vilja auka þekkingu sína á vísindalega gagnreyndum aðferðum til þess að rækta eigin sjálfsþekkingu og vellíðan.
Steinunn Ragnarsdóttir hefur átt glæsilegan feril sem leiðandi stjórnandi í menningarlífi landsins um árabil. Árið 2018 lauk hún þriggja ára Fellowship námi í skapandi stjórnun og stefnumótun frá háskólanum í Maryland og Executive Leadership námi frá Harvard Business School árið eftir. Steinunn hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og starfar sem alþjóðlegur stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi. Hún hefur viðurkennd starfsréttindi í LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni og kemur reglulega fram á ráðstefnum þar sem hún tekur þátt í umræðum og heldur erindi m.a. um skapandi leiðir til velferðar og árangurs.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.