Staðnámskeið

TRAS - skráning á málþroska ungra barna

- réttindanámskeið
Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 8. september
Almennt verð 47.200 kr. 42.900 kr.

Mán. 18. sept. kl. 13:00 - 16:00 og 9. okt. kl. 13:00 - 15:00

5 klst.

Hólmfríður Árnadóttir og Hrafnhildur Karlsdóttir

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrá á einfaldan hátt yfirlit yfir málþroskaferli tveggja til fimm ára gamalla barna með því að fylla út skráningarlista. Spurningar á skráningarlistanum eru byggðar á niðurstöður rannsókna um þróun málþroska.

Góður málþroski skiptir miklu máli fyrir almennan þroska.
TRAS- efnið var þróað og samið af sérfræðingum í sérkennslu og talmeinafræði í Noregi og er skráningaraðferðin almennt notuð í leikskólum á Norðurlöndunum.

Á námskeiðinu er rætt um mikilvægi þess að leikskólakennarar og annað fagfólk fylgist vel með þróun málþroska og þátttakendur læra að skrá málþroska ungra barna út frá ákveðnum færnisviðum. Einnig er fjallað um helstu frávik í málþroska og ræddar eru hugmyndir um viðeigandi íhlutun og ráðgjöf til foreldra og forráðamanna.

Á námskeiðinu er fjallað um

Fræðin á bakvið TRAS -efnið.
Notkun TRAS - skráningalistans.
Tengsl málþroska, námsárangurs, hegðunar og líðan.
Skráningarblöð sem tilheyra TRAS og þátttakendur fá æfingu í notkun þeirra.
Hugmyndir um ráðgjöf og íhlutun.

Ávinningur þinn

Öðlast betri þekkingu á málþroska út frá ákveðnum málþáttum.
Getur unnið markvissar eftir hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar m.a. með því að hafa yfirsýn yfir hvaða börn, á mismunandi aldri, eru með frávik í málþroska.
Getur nýtt þér niðurstöður TRAS-skráningarlistans fyrir markvissa íhlutun í samvinnu við foreldra og aðra sérfræðinga ásamt því að meta árangur í málörvun og velja málörvunarefni við hæfi.
Getur gert þér betur grein fyrir hvenær æskilegt er að vísa börnum til talmeinafræðinga og annarra sérfræðinga. Verið færari í að veita íhlutun og ráðgjöf út frá eðli málþroskafrávika.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum, þroskaþjálfum, talmeinafræðingum, sálfræðingum og sérkennurum.
Þetta er réttindanámskeið og aðeins þeir sem hafa sótt þetta námskeið hafa leyfi til að nota TRAS skráningarlistann. Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum.

Nánar um kennara

Hrafnhildur Karlsdóttir er leik- og grunnskólakennari, með framhaldsnám í stjórnun menntastofnana og hefur langa kennslureynslu í leikskólum. Hrafnhildur hefur starfað sem sérkennslu- og einhverfuráðgjafi á skólaskrifstofu. Hún starfar nú sem teymisstjóri og kennsluráðgjafi í Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Hrafnhildur hefur kennt á fjölda námskeiða fyrir kennara og foreldra.

Hólmfríður Árnadóttir er með almennt kennarapróf og sérkennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands. Auk þess hefur hún MEd gráðu í talmeinafræðum. Hún hefur starfað sem sérkennari og talmeinafræðingur og rekið sína eigin stofu með hléum frá því árið 2000. Hún hefur kennt á fjölda námskeiða fyrir fullorðna og var um skeið stundakennari við Menntavísindasvið HÍ þar sem hún var með námskeið um málþroskaröskun og námserfiðleika. Auk þess hefur hún starfað sem ráðgjafi á Skólaskrifstofum.

Hrafnhildur og Hólmfríður eru í íslenska TRAS hópnum sem þýddi og staðfærði TRAS skráningarlistann. Þær tóku einnig þátt í að þýða bókina SOL – spjallað og leikið. Í bókinni eru fræðilegir kaflar um málþroska og inniheldur 127 leiki sem þjálfa markvisst málþroska barna.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

TRAS - skráning á málþroska ungra barna

Verð
47200

<span class="fm-plan">&Aacute; n&aacute;mskei&eth;inu l&aelig;ra &thorn;&aacute;tttakendur a&eth; skr&aacute; &aacute; einfaldan h&aacute;tt yfirlit yfir m&aacute;l&thorn;roskaferli tveggja til fimm &aacute;ra gamalla barna me&eth; &thorn;v&iacute; a&eth; fylla &uacute;t skr&aacute;ningarlista. Spurningar &aacute; skr&aacute;ningarlistanum eru bygg&eth;ar &aacute; ni&eth;urst&ouml;&eth;ur ranns&oacute;kna um &thorn;r&oacute;un m&aacute;l&thorn;roska.</span>