

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 28. apríl kl. 13:00 - 16:00
Hannes Björnsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á námskeiðinu er saga dáleiðslu rakin og hvernig dáleiðsla hefur frá upphafi tengst ákveðnum greinum innan heilbrigðisvísindanna. Skoðað er hvað dáleiðsla í meðferð er og hvað hún er ekki. Greint er frá helstu dáleiðslufélögum hérlendis og erlendis og þeim aðilum sem kenna dáleiðslu hér og þar. Farið er yfir áhugaverðar niðurstöður úr ýmsum rannsóknum með áherslu á nýlega rannsókn þar sem dáleiðsla er notuð sem hugvíkkandi meðferð án lyfja.
Dáleiðsla er mjög hlaðið og órætt hugtak sem fólk leggur misjafnan skilning í. Sumir telja dáleiðslu vera varhugaverða aðferð til að ná valdi yfir fólki á meðan aðrir líta dáleiðslu sem gagnlega leið fyrir fólk til að vinna sjálft úr djúpstæðum vanda. Sums staðar er dáleiðsla jafnvel bönnuð eða einungis leyfð fyrir mjög takmarkaðan hóp heilbrigðisstarfsmanna.
Gagnreyndar rannsóknir sýna góðan árangur dáleiðslu á ákveðnum sviðum og virtar erlendar stofnanir á heilbrigðissviði bendi á þá gagnsemi hennar. Í sumum tilvikum virðist dáleiðsla geta komið í stað lyfja eða bætt árangur þeirra.
Á námskeiðinu verður farið hratt yfir sögu dáleiðslu og þá aðila sem hafa komið mest að þróun hennar með áherslu á ofanverða tuttugustu öld og nú. Farið er yfir það hvað dáleiðsla er og hvað takmarkar möguleika hennar. Mismunandi aðferðir dáleiðslu eru kynntar og hvernig þær geta unnið með annarri meðferð. Þá eru nýlegar rannsóknir á dáleiðslu kynntar og loks er farið yfir dæmi um innleiðslu og dáleiðslu.
Námskeiðið er eingöngu ætlað háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki.
Ekki er krafist undirbúnings fyrir námskeiðið en áhugasamir geta skoðað þær upplýsingar sem er að finna á heimasíðu Dáleiðslufélags Íslands – dfi.is.
Hannes Björnsson er formaður Dáleiðslufélags Íslands sem var stofnað árið 2001 af háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki til að bæta árangur meðferðar með dáleiðslu. Hann hefur verið virkur í alþjóðastarfi og Evrópustarfi dáleiðslufélaga. Hannes er klínískur sálfræðingur sem hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum 1992 til 2001 og prestur Íslendinga í Noregi frá 2001 til 2004. Hann var stundakennari við Sálfræðideild Háskóla Íslands um sex ára skeið meðfram og eftir sálfræðinámið.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.