Staðnámskeið

Þýska fyrir byrjendur IV

Aðeins 4 sæti laus

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. og fim. 4. mars - 10. apríl kl. 16:40 - 18:10 (12x)

18 klst.

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Í samstarfi við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

 

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa lokið Þýska fyrir byrjendur I, II og III eða hafa sambærilega þekkingu á þýsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.

Námskeiðið er kennt í 6 vikur á síðari hluta vormisseris, tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.


Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs geta nemendur:

  • tjáð sig í ræðu og riti um hversdagsleg málefni eins og athafnir og atburði, húsbúnað, langanir og óskir, innkaup, ferðalög og íþróttir
  • svarað öðrum með því að: tjá samúð, gefa ráð, ræða hugmyndir og tillögur
  • skilið samræður á þýsku um hversdagsleg málefni (sbr. hér að ofan)

Nemendur munu einnig öðlast enn betri innsýn í þýska menningu og þjóðfélög þýskumælandi landa.

Námskeiðið er kennt á ensku og þýsku.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.
 

Sjá kennsluskrá hér 

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Þýska fyrir byrjendur IV

Verð
75000