

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fös. 27. febrúar kl. 9:00 - 16:00
Fjóla Þorvaldsdóttir
Hanna Eiríksdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á námskeiðinu verður fjallað um starf sérkennslustjóra og rætt út frá helstu viðfangsefnum hvernig hægt er að auðvelda sér starfið með góðu skipulagi og aðstoð upplýsingatækninnar.
Námskeiðið verður bæði í formi fyrirlestra og vinnustofu. Gefið verður gott rými fyrir umræður þannig að þátttakendur geti skipst á hugmyndum og reynslu.
Markmiðið með námskeiðinu er að:
Námskeiðið er ætlað sérkennslustjórum, óháð menntun viðkomandi.
Ef þátttakendur hafa aðgang að fartölvu eða iPad mega þeir gjarnan hafa það meðferðis á námskeiðið.
Fjóla Þorvaldsdóttir sérkennari hefur áratuga reynslu sem sérkennslustjóri og er með framhaldsmenntun á sviði sérkennslu og upplýsingatækni.
Hanna Rún Eiríksdóttir er kennari í Klettaskóla. Hún hefur áralanga reynslu af kennslu nemenda með þroskahömlun í grunnskólum og sinnir nú einnig ráðgjöf varðandi tjáskipti og augnstýringu.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.