

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Námskeið verður kennt á vormisseri 2025 - Sjá nánar í stundatöflu
Háskóli Íslands - sjá stundatöflu
Almenn umfjöllun er um lög og reglur varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna. Farið er í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra á líkamann og milliverkun lyfja. Gerð er grein fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við ávísun þeirra. Lögð er áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti (viðhorf, þekkingu, reynslu...) er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Fjallað er um verkun prógesteróns og estrógens á líkamann, gerður samanburður á samsettum getnaðarvörnum og prógesterón getnaðarvörnum , kostum þeirra, aukaverkunum og meðhöndlun þeirra. Veitt er kennsla um kynheilbrigði, kynlífsvanda og kynsjúkdóma.
Nemendur fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir þar sem að miklu leiti er byggt á klínískum tilfellum. Þeir æfa sig við að beita aðferðum sem geta skipt sköpum til að ná árangri með ráðgjöfinni og stuðlað getur að markvissri notkun getnaðarvarna. Fjallað er um mismunandi áherslur viðtala eftir sérhópum. Fram fer sýnikennsla í uppsetningu á hormónastaf og lykkju og nemendur fá tækifæri til að æfa sig í þeim handbrögðum.
Undanfarar / Forkröfur:
Námskeiðið er ætlað bæði hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum sem hafa fengið starfsleyfi hérlendis. Hjúkrunarfræðingar sem sækja námskeiðið þurfa að hafa lokið MS námi í hjúkrunarfræði t.d. með áherslu á heilsugæsluhjúkrun eða sambærilega sérgrein eða eru nemendur í slíku námi. Bent er á að aðeins hjúkrunarfræðingar með meistaranám geta sótt um leyfi til lyfjaávísana til Embættis landlæknis. Ljósmæður sem sækja námskeiðið þurfa að hafa lokið kandídatsnámi eða meistaranámi.
ATH: Fræðilegi hluti námskeiðsins er kenndur í 5 daga lotu. Námskeiðið nær yfir fimm vikur og á þeim tíma þurfa nemendur að skila tveimur verkefnum og taka rafrænt lokapróf.
Skyldumæting er í umræðufundi dagana 11. og 30. apríl og í sýnikennslu 4. apríl. Rafrænt staðarpróf er 15. apríl.
Umsóknarfrestur verður til og með 29. mars. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma. Nemendur við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðifræðideild Háskóla Íslands skrá sig í námskeiðið með hefðbundnum hætti. Nemendur í framhaldsnámi við Háskólann á Akureyri þurfa að sækja um námið sem gestanemar samkvæmt reglum HA.
Senda skal prófskírteini sem staðfesta fyrra nám á netfangið endurmenntun@hi.is og setja Ráðgjöf um getnaðarvarnir – lyfjaávísanir (HJÚ157F) í viðfangsefni (subject).
Í lok námskeiðs eiga nemendur að geta:
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.