

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 19. og þri. 20. maí kl. 8:30 - 15:30 (2x)
Pétur Guðmann Guðmannsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á þessu námskeiði er farið dýpra í réttarlæknisfræði fyrir fagfólk og byggt ofan á þann grunn sem námskeiðið “Hagnýt réttarlæknisfræði fyrir fagfólk” veitti.
Dýpri könnun á réttarlæknisfræði fyrir fagfólk, með praktískum áherslum. Farið er yfir hvernig matsgerðir fyrir réttarkerfið eru unnar, skotáverkar eru skoðaðir nánar og farið yfir dauðaferlið á nákvæman hátt. Fjallað er um hvaða vandamál koma upp við rannsókn manndrápa og hvernig kennsl og skoðun krefjandi líkamsleifa fer fram.
Þess skal getið að kennari sýnir myndir til stuðnings máli sínu. Sumar hverjar þessara mynda sýna áverka á fólki og/eða látið fólk. Myndirnar geta vakið óhug.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið fyrra námskeiði “Hagnýt rétttarlæknisfræði fyrir fagfólk” hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Pétur Guðmann Guðmannsson er réttarlæknir sem starfað hefur við fagið í 9 ár, fyrst í Svíþjóð og síðar á Íslandi. Hann hefur komið að fjöldamörgum rannsóknum á manndrápum og ofbeldisverkum. Hann hefur sérstaklega rannsakað áverka á hálsi og banvænar árásir dýra. Pétur kennir réttarlæknisfræði og hjartameinafræði við læknadeild HÍ.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.