

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mið. 26., fim. 27. og fös. 28. mars kl. 8:00 - 16:00 (3x)
Sólveig Kjærnested
Gísli Kort Kristófersson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Þriggja daga vinnusmiðja þar sem farið verður yfir gagnreyndar aðferðir til að koma á, viðhalda og styrkja meðferðarsambandið. Sérstaklega verður lögð áhersla á verklegar æfingar og unnið verður með klínísk dæmi alla þrjá dagana.
Heill dagur verður tekinn í krefjandi samskipti og hvernig hægt er að draga úr valdabaráttu í meðferðarsambandinu. Einnig verður fjallað um hvernig hægt er að lágmarka streitu sem krefjandi vinnu með skjólstæðingum fylgir.
Vinnusmiðjan er ætluð fyrir heilbrigðisfagfólk sem vinnur náið meðferðarstarf með einstaklingum með geðrænar áskoranir, t.d sálfræðinga, lækna, iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sjúkrahúspresta/presta.
Dr. Gísli Kort Kristófersson er sérfræðingur í geðhjúkrun, prófessor við Háskólann á Akureyri, aðjúnkt við University of Minnesota og Háskóla Íslands. Gísli útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2004, með meistaragráðu í geðhjúkrun frá Minnesota háskóla 2008 og doktorsgráðu með áherslu á geðhjúkrun frá sama skóla árið 2012. Hann hefur starfað í geðheilbrigðisþjónustunni frá 2004, bæði á íslenskum og erlendum vettvangi, á legudeildum fullorðinna, BUGL og í þverfaglegum samfélagsteymum, einkastofu og göngudeildarþjónustu. Ásamt kennslu og fræðastörfum starfar Gísli sem sérfræðingur í geðhjúkrun á einkastofu og á SAk.
Sólveig Fríða Kjærnested sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún útskrifaðist 2010 sem sálfræðingur frá Háskólanum í Árósum og fékk séfræðileyfi 2020. Sólveig Fríða hefur starfað sem sálfræðingur og sviðsstjóri meðferðarsviðs hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, sem MST þerapisti (fjölkerfameðferð) og starfar í dag sem sálfræðingur á Landspítalanum, á öryggis- og réttargeðdeild.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.