Ásgeir Brynjar Torfason

Sigurjón Guðbjörn Geirsson

Peningur kr.
Námskeið

Nú liggur fyrir að innleiða nýja staðla alþjóðasamtaka innri endurskoðanda þar sem siðareglur eru nú samþættar við aðra staðla. Sambærileg breyting hefur átt sér stað í siðareglum ytri endurskoðanda. Á sama tíma eru að koma fram nýjar kröfur til stjórnarhátta stærri skipulagsheilda sem munu hafa áhrif á störf endurskoðenda.  

Hvaða áhrif mun ný ákvæði í siðareglum endurskoðenda, aukin áhersla á sjálfbærnismál og aukin áhersla á hlutverk endurskoðunarnefnda hafa störf endurskoðenda í framtíðinni?   

Á námskeiðinu munum við leitast við að svara þessum spurningum. Einnig verður farið yfir raunhæf dæmi m.a. í ljósi aðstæðna hér á landi og erlendis og umræðum um viðskiptasiðferði.

Námskeiðið er sjálfstætt framhald af námskeiði um siðareglur sem haldið var á síðasta ári og er það haldið í samstarfi við félag um innri endurskoðun.  

Námskeið þetta gefur 2 endurmenntunareiningar á sviði siðareglna. 


 

Nánar um kennara

Ásgeir Brynjar Torfason er Doktor í fjármálum, sérfræðingur og kennari í viðskiptasiðferði.
Sigurjón G. Geirsson er löggiltur endurskoðandi og starfar sem innri endurskoðandi Háskóla Íslands.

 

Verð