Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. og fim. 8. okt. - 14. nóv. kl. 16:40 - 18:10 (12x)
18 klst.Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar
Í samstarfi við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.
Framhald af námskeiðinu Þýska fyrir byrjendur I en nauðsynlegt er að nemendur hafi lokið því námskeiði eða hafi sambærilegan grunn í þýsku.
Námskeiðið er kennt í 6 vikur, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn frá 8. október til 14. nóvember, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs geta nemendur:
- notað algengan orðaforða.
- skrifað og talað auðveldlega um einföld málefni.
- skilið einfaldar hlustunaræfingar.
- svarað einföldum fyrirspurnum á þýsku.
Námskeiðið er kennt á ensku og þýsku.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.
Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa vinnubækur námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Momente A1 Kursbuch og Momente A1 Arbeitsbuch sjá hér
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.