Staðnámskeið

Franska fyrir byrjendur II

Aðeins 5 sæti laus

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. og fim. 7. okt. - 13. nóv. kl. 16:40 - 18:10 (12x)

18 klst.

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í frönsku máli á skömmum tíma og hafa lokið námskeiðinu FRA017G Franska fyrir byrjendur I eða hafa sambærilega forkunnáttu (í samráði við kennara). Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í frönsku.

Á námskeiðinu er fjallað um

Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir öll helstu grunnhugtök í franskri málfræði.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs hafa nemendur:
- Náð tökum á einföldum orðaforða daglegs lífs og geti tjáð sig um sjálfa sig, fjölskyldu sína, sitt nánasta umhverfi eins og t.d. híbýli.
- Öðlast skilning á grunnatriðum franskrar málfræði.
- Þekkja og geta borið fram helstu málhljóð í frönsku máli.

Nemendur geta:
- Lesið einfalda texta á frönsku.
- Skilið einfalt hlustunarefni á frönsku.
- Ritað einfaldan texta á frönsku svo sem lýsingar á hýbýlum og persónum.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Franska fyrir byrjendur II

Verð
75000