Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. og fim. 8. okt. - 14. nóv. kl. 16:40 - 18:10 (12x)
18 klst.Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar
Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ
Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum hindí. Engrar forkunnáttu er krafist þar sem námskeiðið er fyrir byrjendur.
Í námskeiðinu kynnast nemendur Devangari ritmáli og framburði á hindí og markmiðið er að læra einföld samskipti á hindí. Námskeiðið er tjáskiptamiðað og stuðst verður við fjölbreytt námsefni m.a. hljóð-og myndefni.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn á þriðjudögum og fimmtudögum á tímabilinu 8. október - 14. nóvember kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.
Viðfangsefni námskeiðsins:
- Hindístafrófin
- Sérhljóð og samhljóð
- Ósjálfstæð sérhljóð
- Tveggja, þriggja og fjögurra stafa orð
- Kyn og tala orða
Hæfniviðmið:
Í lok þessa námskeiðs hafa nemendur:
- þekkt hindístafrófin, skilið og borið fram hljóð í hindí bæði sér- og samhljóða.
- þekkt, lesið og skilið tveggja, þriggja og fjögurra stafa orð.
- lesið og skilið setningar sem samanstanda af tveggja, þriggja eða fjögurra stafa orðum.
- greint bæði kyn og tölu orða.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.
Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa vinnubók námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Get started in Hindi Absolute Beginner Course, höf. Rupert Snell, útg. John Murray Learning 2014.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.