Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mið. 6. nóv. kl. 14:00 - 16:00
2 klst.Ragnheiður Guðrúnardóttir
Davíð Östergaard
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Skólinn er einn helsti vettvangurinn fyrir geðrækt barna, þroska þeirra og félags- og tilfinningafærni. Rannsóknir sýna að börn sem reynt hafa skilnað foreldra sinna og/eða búa á tveimur heimilum geta haft sértækari þarfir en önnur börn. Birtingarmyndir þess geta verið tengdar námsárangri, félagslegum þroska og inn- og úthverfum vanda og koma gjarnan fram innan veggja skólans. Því gegnir starfsfólk leik- og grunnskóla lykilhlutverki í lífi barna sem búa á tveimur heimilum.
Á námskeiðinu, sem er fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla, verður fjallað um líðan barna sem búa á tveimur heimilum og álagið sem því fyrirkomulagi getur fylgt. Farið verður yfir hvaða áhrif samvistarslit foreldra geta haft á þroska, aðlögun og afdrif barna. Lögð er áhersla á að þátttakendur kynnist gagnlegum nálgunum og hagnýtum aðferðum sem stuðla að stöðugleika, fyrirsjáanleika og vellíðan barnsins innan skólakerfisins. Á námskeiðinu verður stuðst við fræðilega og faglega nálgun á viðfangsefnið.
Starfsfólk leik- og grunnskóla sem starfar með börnum og unglingum.
Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir er félagsráðgjafi M.A, stofnandi og eigandi meðferðar- og ráðgjafarstofunnar Tvö heimili og teymisstjóri á Geðheilsumiðstöð barna.
Davíð Alexander Östergaard hefur lokið BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði, er í námi á meistarastigi í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf og er jafnframt aðstoðarkennari hjá HÍ.
Bæði eru þau skilnaðarráðgjafar hjá SES-Pro og foreldrar barna á tveimur heimilum.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.