Staðnámskeið

Sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga - fyrir fagfólk

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim. 31. okt. kl. 13:00 - 17:00

4 klst.

Kristín Inga Grímsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 26.900 kr.
Snemmskráning til og með 21. október. Almennt verð 29.600 kr.
Námskeið

Sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga er vaxandi vandi á vesturlöndum og víða farið að skilgreina hana sem lýðheilsuvanda. Hegðunin er þess eðlis að hún veldur álagi og spennu innan fjölskyldna, meðal unglinga og hjá þeim sem starfa með unglingum. Ástæðan er m.a. sú að erfitt  getur verið að greina á milli sjálfsskaðahegðunar sem hefur þann ætlaða tilgang að lifa og sjálfsvígstilraunar sem hefur þann ætlaða tilgang að deyja.

Sjálfsskaða- sjálfsvígshugsanir og hegðun eru algengari og óstöðugri (geta komið og farið nokkuð skyndilega) hjá unglingum heldur en fullorðnum m.a. vegna aldurs-, þroska- og aðstæðutengdra áhrifaþátta. Sjálfskaði er ekki  sjúkdómur (disease) eða röskun (disorder) heldur hegðun sem gefur eingöngu til kynna að eitthvað er ekki í lagi. Ekki hefur verið hægt að sýna fram á að einhver einn áhættuþáttur sé áberandi líklegri en annar til að unglingur byrji að skaða sig. Tilgangurinn er oftast að losa um innri spennu/streitu, auk þess sem smitáhrif í umhverfinu geta haft töluverð áhrif. 
Þar sem sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun er orðin nokkuð algeng er mikilvægt að fagfólk, sem vinnur með unglingum, þekki hvernig best er að bregðast við miðað við þá þekkingu sem til er í dag.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Skilgreiningar á sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun, algengi, tilgangi og samverkandi áhrifaþáttum.
  • Helstu ástæður þess að sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun veldur álagi, spennu og streitu meðal foreldra, unglinga, fagfólks og annarra sem starfa með unglingum.
  • Smitáhrif í vinahópum.
  • Mat á alvarleika og gagnleg/ógagnleg viðbörgð foreldra, fagfólks og annarra sem starfa með unglingum. 
  • Hvaða meðferðir lofa góðu varðandi árangur.

Ávinningur þinn

  • Þekking á hugtökunum, einkennum, áhrifum, samverkandi áhrifaþáttum og tilgangi sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðunar.
  • Að eiga auðveldara með að bregðast rétt við, bæði í ótryggum aðstæðum og eins til lengri tíma.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað fagfólki í heilsugæslu, skólum, þjónustumiðstöðvum, barnavernd, félagsþjónustu og öðrum aðilum sem starfa með unglingum.

Nánar um kennara

Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun. Starfar á göngudeild BUGL og á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur verið með svipað námskeið sem ætlað er fagfólki í Endurmenntun HÍ yfir nokkurra ára skeið. Ásamt því hefur hún kennt efnið í hjúkrunarfræðideild HÍ og HA, þá hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeið um efnið bæði á ráðstefnum og fyrir fagfólk sem vinnur með börn og unglinga.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga - fyrir fagfólk

Verð
26900