Staðnámskeið

Húmor og grimmd

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim. 14. nóv. kl. 19:00 - 22:00

3 klst.

Ársæll Már Arnarsson

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 20.900 kr.
Snemmskráning til og með . nóvember. Almennt verð 23.000 kr.
Námskeið

Flestir líta húmor jákvæðum augum. Hann er eftirsóknarverður hluti af persónuleika fólks, enda léttir hann því lífið og gerir öll samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar ekki einfalt að útskýra í hverju húmor felst og þegar hann er skoðaður nánar kemur í ljós að hann er alls ekki alltaf jákvæður heldur oft svartur, meiðandi og grimmur.

Húmor og grimmd eru ævagamlir förunautar og í þessu námskeiði eru þessi mikilvægu hugtök skoðuð í ljósi hugmyndasögunnar frá fjölmörgum sjónarhornum. Hvað er fyndið og hvers vegna erum við að reyna að vera fyndin? Einnig verður skoðað hvað er grimmd og hvers vegna sýnum við hana? Megináherslan er þó lögð á skörun þessara hugtaka, þ.e. hvort húmor sé alltaf í eðli sínu beittur og þar af leiðandi meiðandi. Ekki þarf að fjölyrða um að efnið á ríkt erindi við samtímann.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Stórmerkilega og langa sögu hugtaksins „húmor“. 
  • Farið er yfir helstu kenningar um húmor frá forngrískum heimspekingum til vorra daga. 
  • Skoðað hvað felst í grimmd og hvernig hún birtist í mannlegu samfélagi, sérstaklega í húmor. 
  • Fjallað um hvernig húmor og grimmd geta verið á skjön við hvort annað, þ.e.a.s. hvernig hægt er að beita grimmd til að hemja húmor og hvernig húmor getur nýst til að berjast gegn grimmd.

Ávinningur þinn

  • Dýpri skilningur á þessum tveimur mikilvægu fyrirbærum, húmor og grimmd og hvernig þau lita mannlega tilvist.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem halda að þau séu fyndin án þess að vera grimm.

Nánar um kennara

Ársæll Arnarsson er prófessor á Menntavísindasviði. Ásamt Giorgio Baruchello prófessor skrifaði hann fjögurra binda ritröð sem nefnist „Humour & Cruelty“ og var gefin út af DeGruyter. Þeir félagar hafa einnig birt greinar um efnið í alþjóðlegum fræðiritum ásamt því að halda fyrirlestra hérlendis og erlendis.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Húmor og grimmd

Verð
20900