Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 12. nóv. kl. 19:00 - 22:00
3 klst.Miriam Petra Ómarsdóttir Awad
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á þessu námskeiði fá þátttakendur kennslu í kynþátta- og menningarfordómum, birtingarmyndum og áhrifum þeirra í íslensku samfélagi ásamt umfjöllun um hugtakið inngildingu og hvernig inngilding nýtist í baráttunni við fordóma.
Hugtökin fordómar og inngilding eru á allra vörum en ekki er öllum skýrt hvað þau þýða. Á námskeiðinu verður farið yfir muninn á kynþátta- og menningarfordómum, sögu þeirra og hvernig þeir birtast í alþjóðlegu og íslensku samhengi. Fjallað verður um áhrif fordóma á líðan þeirra sem verða fyrir þeim til að auka skilning á mikilvægi baráttunnar gegn fordómum.
Síðari hluti námskeiðisns verður helgaður inngildingu (e. inclusion) og hvernig inngildandi hugarfar er mikilvægur þáttur í að stuðla að jafnara og sanngjarnara samfélagi, en inngilding snertir allt fólk á einhvern hátt. Hægt er að nota inngildingu sem tól til að auka menningarnæmi, en á námskeiðinu verður líka farið yfir hugtökin menningarnæmi og menningarnám.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með gagnvirkum spurningum sem þátttakendur geta svarað í rauntíma, auk umræðna.
Allan almenning sem hefur áhuga á að fræðast um fordóma og inngildingu. Engar forkröfur nauðsynlegar.
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad er með BA í frönsku og MA í hnattrænum tengslum frá Háskóla Íslands. Í bæði grunnnámi og framhaldsnámi kynnti Miriam sér áhrif nýlendustefna á nútíma samfélög en í lokaritgerð í hnattrænum tengslum vann hún rannsókn um áhrif fordóma á sjálfsmyndir íslenskra kvenna með mið-austurlenskar rætur. Miriam hefur frá 2021 haldið fræðsluerindi um kynþátta- og menningarfordóma á Íslandi og starfar nú sem inngildingarfulltrúi á Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.