

Valmynd
Elísa Guðnadóttir
Nægur svefn er meginundirstaða líkamlegrar og andlegrar heilsu og þroska barna. Flestir umönnunaraðilar upplifa á einhverjum tímapunkti áskoranir í tengslum við svefntíma, daglúrinn og/eða nætursvefninn. Slíkar áskoranir geta undið hratt upp á sig og verið streituvekjandi fyrir börn og umönnunaraðila. Ef þú vilt læra hvernig er hægt að fyrirbyggja að slíkt gerist, kynnast mismunandi leiðum til að takast á við erfiðleika þegar þeir koma upp og/eða fræðast um svefn barna þá gæti þetta verið námskeið fyrir þig.
Á þessu fræðslunámskeiði verður leitast við að svara algengum spurningum umönnunaraðila um svefn barna á leikskólaaldri. Af hverju er svefn mikilvægur? Hversu mikinn svefn þurfa börn að jafnaði? Hvað telst til svefnerfiðleika? Hvaða umhverfisþættir geta ýtt undir og viðhaldið svefnerfiðleikum? Hvaða hlutverk spilar daglúrinn og hvenær á að taka hann út? Hvað eru góðar svefnvenjur? Hvað er til ráða ef barn fæst ekki í rúmið, er lengi að sofna, þarf aðstoð við það eða getur ekki sofið í sínu rúmi? Þetta eru spurningar sem allir umönnunaraðilar barna á leikskólaaldri ættu að geta nýtt sér svör við, sama hvort þeir eiga börn á leikskólaaldri sem eru að glíma við svefnerfiðleika eða vilja fyrirbyggja að eðlilegar svefntruflanir endi sem langvarandi svefnerfiðleikar.
Þau sem koma að umönnun barna á leikskólaaldri, til dæmis foreldra, starfsfólk leikskóla, ömmur og afa.
Elísa Guðnadóttir útskrifaðist sem sálfræðingur frá HÍ árið 2008, úr sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá EHÍ árið 2019 og hlaut nafnbótina sérfræðingur í klínískri barnasálfræði árið 2023. Hún starfaði á Þjónustumiðstöð Breiðholts fráárinu 2009 til 2017 við greiningar á þroska, hegðun og líðan barna og unglinga og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla. Elísa starfaði á Sálstofunni ehf. frá árinu 2017 til ársins 2023. Þar sinnti hún meðferð, ráðgjöf og greiningum vegna hegðunar- og tilfinningavanda barna og unglinga ásamt því að sinna námskeiðahaldi fyrir börn, foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla. Elísa hefur í fjölda ára haldið fræðsluerindi um svefn leikskólabarna og veitt ráðgjöf og sinnt meðferð vegna svefnerfiðleika barna á öllum aldri. Elísa starfar nú hjá Kópavogsbæ sem ráðgjafi farsældar í leikskólum.