

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 6. nóv. kl. 8:30 - 12:30
Bjartey Sigurðardóttir
Sigurgrímur Skúlason
Endurmenntun Háskóla Íslands
Um er að ræða réttindanámskeið þar sem kennt er að leggja fyrir greiningarprófið Hljóðfærni. Markmiðið með fyrirlögn greiningarprófsins er að greina nánar vanda þeirra barna í 1. bekk grunnskóla sem grunur leikur á að séu með frávik í hljóðkerfisvitund.
Hljóðfærni er greiningarpróf sem ætlað er nemendum í 1. bekk grunnskóla og teljast í áhættuhópi vegna lesblindu. Um er að ræða einstaklingspróf sem hefur það að markmiði að greina nánar hljóðkerfisvanda nemenda og bera saman við jafnaldra. Prófið er ítarlegt og tekur á mörgum þáttum hljóðkerfisvitundar, þar á meðal eru mörg verkefni sem greina hljóðavitund. Við uppbyggingu á Hljóðfærni var leitast við að hanna próf sem væri í senn þægilegt í fyrirlögn og höfðaði til barna á umræddum aldri. Einnig var lögð áhersla á að auðvelt væri að skipuleggja íhlutun í framhaldi af niðurstöðu greiningar. Byggt er á hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar og kennurum leiðbeint sérstaklega með hvernig hægt er að taka á vanda þeirra barna sem eru með veikleika í hljóðkerfisvitund.
Námskeiðið er ætlað sérkennurum, talmeinafræðingum og lestrarfræðingum.
Bjartey Sigurðardóttir, M.Ed. talmeinafræðingur og verkefnisstjóri læsis hjá Mennta- og lýðheilsusviði Hafnarfjarðar.
Sigurgrímur Skúlason, Ph.D. í próffræði og matsfræðum og séfræðingur í prófagerð hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og einnig aðjúnkt í megindlegri sálfræði við Háskóla íslands.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.