Staðnámskeið

Að ferðast með lest

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim. 31. okt. og 7. nóv. kl. 19:15 - 21:15 (2x)

4 klst.

Guðrún Ólafsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 24.900 kr.
Snemmskráning til og með 9. september. Almennt verð 27.400 kr.
Námskeið

Lestarferðalög bjóða upp á þægilegan fararmáta við allra hæfi og stundum með fegursta landslag beint fyrir utan gluggann. Hugurinn fer á flug og hjartað tekur gleðikipp.

Ísland er eitt fárra landa án járnbrautalesta. Á námskeiðinu fræðumst við um þennan fararmáta sem er oft vanmetinn af Íslendingum. Sérstök áhersla er lögð á lestir í Evrópu og hvernig hægt er að komast um á þægilegan hátt, styttri og lengri leiðir. Farið verður í praktíska hluti, hvernig hægt er að skipuleggja og bera sig að á lestarstöðvum. Sérstaklega verður fjallað um undraheim næturlestanna, hvernig þær eru að fá uppreisn æru og þá athygli sem þær eiga skilið á tímum kolefnisfótspora.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Lestir sem raunhæfur og þægilegur ferðamáti.
  • Leiðarkort.
  • Mismunandi farrými.
  • Miðakaup, hvernig miðar eru keyptir á netinu.
  • Að vera einn á ferð, að ferðast með öðrum.
  • Lestarpassa, svo sem Interrail passa.
  • Lestarstöðvar.
  • Hvernig á að lesa úr skiltum og upplýsingum.
  • Réttur pallur og rétt svæði á palli.
  • Hvað skal gera þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Ávinningur þinn

  • Innsýn í lestarferðalög.
  • Hugmynd um það hvernig lestarferðalög geta verið ævintýraleg upplifun í sjálfu sér.
  • Þú lærir að greina á milli mismunandi farrýma.
  • Bætt sjálfstraust til að nota lestir.
  • Þú lærir betur að skipuleggja ferð, kaupa miða o.s.frv.

Fyrir hverja

Fyrir alla áhugasama um ferðalög. Nýtist vel þeim sem hafa litla eða enga reynslu af lestum og þurfa praktísk ráð til að bruna af stað.

Nánar um kennara

Guðrún Ólafsdóttir er heimshornaflakkari til nokkurra áratuga. Síðustu árin hefur hún iðulega notfært sér lestarsamgöngur erlendis og tekið sérstöku ástfóstri við næturlestir. Bara tilhugsunin um að sitja í lest og horfa á umhverfið þjóta hjá vekur upp spennu og  tilhlökkun vegna næsta ferðalags.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Að ferðast með lest

Verð
24900