Fjarnámskeið

Gönguleiðir á Tenerife

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 12. nóv. kl. 20:00 - 22:00

2 klst.

Snæfríður Ingadóttir

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 12.900 kr.
Snemmskráning til og með 2. nóvember. Almennt verð 14.200 kr.
Námskeið

Tenerife hefur upp á ýmislegt meira að bjóða en sól og strendur. Áhugafólk um útivist og göngur sækir gjarnan þangað, enda eru í boði óteljandi gönguleiðir, í fjölbreyttu landslagi. Þar ættu allir að geta fundið gönguleið á því erfiðleikastigi sem hentar hverju sinni. Ekki spillir heldur veðurfarið fyrir, en eyjan er sérlega aðlaðandi fyrir göngur að vetrarlagi.

Hnitmiðað námskeið sem hefur það markmið að búa þátttakendur undir gönguferðir á eigin vegum á Tenerife. Helstu náttúruverndarsvæðin eru kynnt og fjallað um það hvernig best sé að ganga um þau. Farið er yfir helsta útbúnað sem þarf að hafa með í för, gefnar eru hugmyndir um gönguleiðir og hvar best sé að leita upplýsinga um góðar gönguleiðir.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Svæði á eyjunni sem eru spennandi fyrir göngufólk.
  • Búnað og veðurfar.
  • Góðar netsíður og bækur.

Ávinningur þinn

  • Þú færð hugmyndir að áhugaverðum gönguleiðum á eyjunni. 
  • Þú færð upplýsingar um hvað þarf að hafa í huga varðandi búnað og veðurfar.
  • Þú færð innblástur fyrir þitt næsta gönguævintýri á Tenerife.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla þá sem langar til að kynnast Tenerife betur á tveimur jafnfljótum. Gönguleiðirnar sem kynntar eru á námskeiðinu eru miserfiðar, en gengið er út frá því að fólk sé á ferð um eyjuna á eigin vegum og þá gjarnan með bíl til umráða.

Nánar um kennara

Snæfríður Ingadóttir, rithöfundur og fjölmiðlakona, hefur búið á Tenerife og skrifað ferðahandbækur um eyjuna. Hennar uppáhaldsafþreying á eyjunni eru gönguferðir.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Gönguleiðir á Tenerife

Verð
12900