Staðnámskeið

Spjallað á ítölsku

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 29. okt. - 3. des. kl. 17:00 - 18:30 (6x)

9 klst.

Maurizio Tani

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 39.900 kr.
Snemmskráning til og með 19. október. Almennt verð 43.900 kr.
Námskeið

Námskeiðið er fyrir þau sem eru með grunn í ítölsku og langar að þjálfa sig meira í að tala og skilja, bæta við orðaforða og hæfni í að nota málfræði í töluðu máli.

Á námskeiðinu vinna þátttakendur saman og með kennara í fjölbreyttum munnlegum æfingum. Æfingarnar byggja á því að vinna með grunnorðaforða og -málfræði sem þátttakendur hafa lært áður og bæta alltaf smá við. Æfingarnar eru þannig skipulagðar að enginn þarf að undirbúa sig sérstaklega heldur fá þátttakendur þau hjálpargögn sem nýtast til að mynda setningar hverju sinni.

Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur þjálfist í að heyra ítölsku talaða, skilja hana og æfa sig til að þora í framtíðinni að tala.

þátttakendur þjálfast í daglegri notkun á ítölsku tungumáli og fá til þess efni sem hjálpar með orðaforða. Einnig verður bent á myndbönd þar sem þátttakendur geta æft sig í hlustun og orðaforða.

Námskeiðið er aðallega kennt á ítölsku þar sem markmiðið er að þjálfa þátttakendur í að hlusta, skilja og tala. Ef eitthvað krefst nánari útskýringa verður stuðst við íslensku.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Ítalskt talmál.
  • Grunnorðaforða sem nýtist til að byrja að tala á ítölsku.
  • Helstu grunnmálfræðiatriði ítölsku rifjuð upp og æfð frekar.

Ávinningur þinn

  • Aukin hæfni í að tjá sig á ítölsku.
  • Aukið sjálfstraust til að tjá sig á ítölsku.
  • Að geta skilið einfalt ítalskt mál.
  • Að kynnast meiri ítölskum orðaforða og festa fyrri lærdóm betur í minni.
  • Að auka hæfni í að nota ítalska málfræði í talmáli.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla þá sem hafa grunn í ítölsku, hægt er að miða við að hafa lokið námi á þrepi A1, lokið Ítölsku II hjá Endurmenntun eða hafa sambærilega grunnþekkingu á tungumálinu.

Nánar um kennara

Maurizio Tani hefur verið stundakennari við HÍ síðan 2001 og hefur langa reynslu af því að kenna ítölsku. Hann er með MA í menningarfræði, BA í ítölskum málvísindum og menningu og einnig er hann með diplómu í ítölskum kennslufræðum. Hann hefur gefið út margar rannsóknir og bækur.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Spjallað á ítölsku

Verð
39900