Fjarnámskeið

Lestur ársreikninga

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 15. og fim. 17. okt. kl. 9:00 - 12:00

6 klst.

Bjarni Frímann Karlsson

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 51.900 kr.
Snemmskráning til og með 5. október. Almennt verð 57.100 kr.
Námskeið

Ársreikningar félaga koma mikið við sögu í efnahagslífinu og efni þeirra snertir líf margra beint og flestra annarra óbeint. Hvaða boðskap flytja ársreikningar okkur? Gefa þeir trúverðuga mynd af starfsemi viðkomandi félaga?

Á námskeiðinu verða grunnhugtök og forsendur ársreikninga kynnt. Uppbygging ársreiknings útskýrð og samhengið milli einstakra kafla. Lagagrundvöllur sem ársreikningar hvíla á og ábyrgð á innihaldi þeirra verður til umræðu. Tekin verða dæmi úr ársreikningum íslenskra félaga og rýnt í hvað þessir reikningar segja okkur, en jafnframt vakin athygli á því hvað þeir segja okkur ekki. Hvaða stærðir í reikningunum eru matskenndar og þá um leið háðar óvissu. Stefnt er að því að þátttakendur öðlist grunnþekkingu í lestri ársreikninga, þekkingu sem þeir geta síðan byggt á eftir áhuga og þörfum.

Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í ársreikninga.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Grunnhugtök, -reglur og forsendur reikningsskila.
  • Uppbyggingu ársreiknings. Samhengið milli einstakra kafla.
  • Regluverkið sem ársreikningar skulu hlíta. Ábyrgð á efni þeirra og framsetningu.
  • Óvissu og matskenndar stærðir. „Skapandi“ reikningsskil.
  • Samstæðureikningsskil. Kynning á eðli þeirra.
  • Nokkrar algengustu kennitölur sem reiknaðar eru á grundvelli ársreikninga.

Ávinningur þinn

  • Skilningur á tilgangi og eðli ársreikninga.
  • Skilningur á helstu hugtökum sem þar ber á góma.
  • Færni til að greina áberandi veikleika í viðkomandi reikningsskilum.
  • Skilningur á mismunandi nálgun við uppbyggingu ársreikninga og áhrif menningar á framsetningu þeirra.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla þekkingu á eðli ársreikninga en langar að fá innsýn í uppbyggingu þeirra og skilning á hvað þeir segja okkur og hvað þeir segja okkur ekki.

Nánar um kennara

Bjarni Frímann Karlsson f.v. lektor í reikningshaldi og endurskoðun við Viðskiptafræðideild HÍ frá 2005.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Lestur ársreikninga

Verð
51900