

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 8. og fim. 10. apríl kl. 9:00 - 12:00 (2x)
Eggert Þröstur Þórarinsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Þetta námskeið hefur verið samþykkt af prófnefnd verðbréfaréttinda og veitir 4 klst. í endurmenntun vegna verðbréfaréttinda.
Áhættustýring er nauðsynlegur hluti af stjórnun fyrirtækja. Markmiðið með námskeiðinu er að efla áhættuvitund og þekkingu á helstu áhættuþáttum í rekstri. Meðal annars verður farið yfir greiningu, mat og stýringu áhættu og hönnun sviðsmynda.
Markviss áhættustýring er mikilvægur þáttur í að tryggja árangur í rekstri fyrirtækja. Farið verður yfir uppsprettur áhættu, svo sem markaðsáhættu, útlánaáhættu og rekstraráhættu. Skoðað verður hvernig áhætta raungerist og hver birtingarmynd hennar er. Hvernig hægt er að draga úr áhættu með áhættudreifingu og áhættuvörnum. Hönnun sviðsmynda verður svo rakin en sviðsmyndagreining er öflugt tæki til að auka skilning á áhrifum óvæntra atburða. Niðurstöður slíkrar greiningar má nota til að efla áhættuvarnir.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, greinendum og hagfræðingum sem koma að ákvörðunum um rekstur og fjármál fyrirtækja. Enn fremur nýtist það þeim sem vilja auka skilning sinn á áhættustýringu, áhættuvörnum og sviðsmyndagerð.
Eggert Þ. Þórarinsson er aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Hann er vélaverkfræðingur frá HÍ, hefur meistaragráðu í fjármálum frá University of Cambridge og er löggiltur verðbréfamiðlari.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.