Staðnámskeið

Fyrirmyndar skjalastjórn

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 15. og fim. 17. okt. kl. 9:00 - 12:00

6 klst.

Eva Ósk Ármannsdóttir

Þorgerður Magnúsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 53.900 kr.
Snemmskráning til og með 5. október. Almennt verð 53.900 kr.
Námskeið

Hver er tilgangurinn með góðri skjalastjórn, til hvers að eyða púðri í hana? Hvernig er hægt að viðhalda góðri skjalastjórn á vinnustöðum?

Á námskeiðinu verður fjallað um lagaumhverfi í skjalastjórn á Íslandi og hvernig skjalastjórn tengist mikilvægum málefnum á vinnustöðum eins og rekjanleika gagna og ákvarðana ásamt tengslum þekkingar og gæða og þekkingarstjórnunar. Jafnframt verður fjallað um mismunandi tegundir skjala og meðhöndlun þeirra sem og gerð eftirfarandi: skjalastefnu, skjalavistunaráætlunar, málalykils, skjalakerfis og lýsigagna. Auk þess verða rafræn skil tekin fyrir.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Greiningu gagna.
  • Innleiðingu og hönnun skjalakerfis. Kostir og gallar.
  • Þroskastig í skjalastjórn.
  • Mismunandi meðhöndlun skjala, s.s. tölvupóstur, pappír, teikningar, ljósmyndir, bækur og skýrslur.
  • Þekkingarstjórnun, þ.e.a.s. að þekking sé ekki falin hjá einstaka starfsmönnum.
  • Hlutverk héraðskjalasafna og Þjóðskjalasafns Íslands. 
  • ISO 15489 alþjóðlegur staðall um skjalastjórn.
  • Rafræn skil, grisjun, skráning og pökkun og skjalageymslur

Ávinningur þinn

  • Hagnýt tæki og tól í skjalastjórn. 
  • Innsýn í bestu starfsaðferðir við stjórnun þekkingar og gagna. 
  • Ýmsum hjálpargögnum verður miðlað til þátttakenda.
  • Aukin þekking og skilningur á ISO/IEC 15489.

Kennslufyrirkomulag

Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, umræðum og léttri verkefnavinnu.

Fyrir hverja

Fyrir þá sem vinna með stjórnun gagna á sínum vinnustað, s.s. vistun, skráningu og pökkun. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.

Nánar um kennara

Eva Ósk Ármannsdóttir er sérfræðingur í skjalastjórn hjá Landsbankanum. Eva er með BA í upplýsingafræði og diplóma í jákvæðri sálfræði. Hún hefur mikla reynslu í skjalastjórn hjá ríki og sveitarfélögum.

Þorgerður Magnúsdóttir er gæðastjóri Varðar, MIS í upplýsingafræði og CIP vottuð. Hún hefur umtalsverða reynslu af gæða- og skjalamálum í fjármálageiranum.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Fyrirmyndar skjalastjórn

Verð
53900