Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 12. og fim. 14. nóv. kl. 8:30 - 12:00
7 klst.Marinó Gunnar Njálsson
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Upplýsingar eru ein helsta eign og lykilþáttur í rekstri fyrirtækja. Að bera kennsl á ógnir sem steðja að upplýsingum og hvernig megi vernda þær ætti því að vera ofarlega í huga allra stjórnenda. Alþjóðlega staðlatvennan, ISO/IEC 27001:2022 og ISO/IEC 27002:2022 hefur áunnið sér sess sem besta starfsaðferðin til að innleiða og halda utan um upplýsingaöryggi. Hún leggur til stjórnunarkerfi og leiðbeiningar um tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir sem gott er að innleiða.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum og stofnunum.
Fyrir þau sem vilja öðlast skilning á staðlatvennunni, ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og aðferðum hennar við stjórnun á upplýsingaöryggi. Sérstaklega hagnýtt fyrir ábyrgðaraðila upplýsingaöryggis hjá skipulagheildum og einstökum rekstrareiningum þeirra.
Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og sérfræðingur í stjórnun upplýsingaöryggis og persónuverndar.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.