Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fös. 25. okt. kl. 08:15 - 16:15 (30 mín. hádegishlé).
7.5 klst.Ágúst Ágústsson
Arngrímur Blöndahl Magnússon
Endurmenntun Háskóla Íslands
Í samstarfi við Staðlaráð Íslands
Óheimilt er að markaðssetja vörur án CE-merkis á Evrópska efnahagssvæðinu, heyri þær undir svokallaðar nýaðferðartilskipanir Evrópusambandsins. Því er brýnt fyrir framleiðendur og innflytjendur véla að gæta að því hvort vörur þeirra heyri undir tilskipanirnar og uppfylli kröfur þeirra. Framleiðendur og innflytjendur bera sjálfir ábyrgð á að vörur þeirra séu CE-merktar, ef við á. Eftir að varan hefur verið CE-merkt má markaðssetja hana án hindrana í öllum löndum EFTA og ESB.
Námskeiðið hentar fyrir framleiðendur, hönnuði, verkfræðinga og innflytjendur véla.
Ágúst Ágústsson, tæknifræðingur og Arngrímur Blöndahl, tæknifræðingur hjá Staðlaráði Íslands. Arngrímur Blöndahl er sérfræðingur Staðlaráðs í CE merkingum en hann hefur kennt þetta námskeið í 10 ár. Ágúst hefur einnig langa reynslu af kennslu námskeiðsins.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.