

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 30. sept. kl. 09:00 - 12:00
Guðrún Ólafsdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?
Á þessu námskeiði skoðum við líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar. Rætt er um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Mikilvægi hæfni einstaklinga og hvernig henni er viðhaldið. Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga í góðu og öruggu vinnuumhverfi.
Alla sem eru hluti af vinnustöðum landsins, sérstaklega áhugavert fyrir vinnustaði þar sem nú þegar er verið að vinna samkvæmt hugmyndafræði gæðastjórnunar og / eða standa fyrir vinnuverndarstarfi. Nytsamlegt fyrir gæðastjóra, öryggisstjóra, mannauðsstjóra og stjórnendur sem eru að hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu.
Námsefni: Stuðst verður við viðeigandi kafla í ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi - kröfur sem og efni frá Vinnueftirliti ríkisins. Bent á fróðleik á netinu. Dæmi tekin úr atvinnulífinu.
Guðrún Ólafsdóttir M.Sc. viðskiptafræði, gæðastjóri með sterka öryggisvitund, sem kemur daglega að ýmsu sem snertir líðan og viðhorf starfsfólks, þvert á starfssvið og deildir.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.