Fjarnámskeið

Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim 17. okt, kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Guðrún Ólafsdóttir

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 29.900 kr.
Snemmskráning til og með 7. október. Almennt verð 32.900 kr.
Námskeið

Á þessu námskeiði verður fjallað um líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar.

Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?
Á námskeiðinu verður fjallað um félagslega og sálræna þætti, sem og vinnuaðstöðu og eins hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.

Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga!

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Hvað er góður vinnustaður í gæðastjórnunarfræðum?
  • Heilsu – Öryggi - Umhverfi.
  • Viðhorf starfsfólks.
  • Skýrar starfslýsingar.
  • Að þekkja hlutverk sitt, að þekkja hlutverk annarra.

Ávinningur þinn

  • Starfsgleði, viðhorf.
  • Hugmyndir hvernig er hægt að efla vinnustaðinn.
  • Öðlast innsýn inn í vinnuverndarhugsun og sjónarhorn gæðastjórnunar.

Fyrir hverja

Öll sem eru hluti af vinnustöðum landsins, sérstaklega áhugavert fyrir vinnustaði þar sem nú þegar er verið að vinna samkvæmt hugmyndafræði gæðastjórnunar og / eða standa fyrir vinnuverndarstarfi. Nytsamlegt fyrir gæðastjóra, öryggisstjóra, mannauðsstjóra og stjórnendur sem eru að hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu.

Nánar um kennara

Guðrún Ólafsdóttir M.Sc. viðskiptafræði, er öryggis- og gæðastjóri sem kemur daglega að ýmsu sem snertir líðan og viðhorf starfsfólks, þvert á starfssvið og deildir. 

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Verð
29900