

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 12. og þri. 13. maí kl. 12:30 - 16:30 (2x)
Guðrún Guðmundsdóttir
Hildur Halldórsdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Námskeið 11. - 12. mars (fullbókað)
Námskeið 7. - 8. maí (fullbókað)
Námskeið 12. - 13. maí
Á þessu námskeiði verður fjallað um helstu þætti mannauðsstjórnunar frá ráðningu starfsmanna til starfsloka.
Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust og færni nýrra stjórnenda í mannauðstengdum málum, hvort sem um er að ræða mótttöku nýrra starfsmanna eða endurgjöf og samtöl. Einnig verður fjallað um vinnustaðamenningu og erfið starfsmannamál.
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur munu taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennsluaðferðir eru meðal annars æfingar, dæmi og umræður.
Ætlað nýjum stjórnendum sem vilja öðlast meiri færni og efla sig í helstu þáttum mannauðsstjórnunar.
Guðrún og Hildur reka fyrirtækið AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf með það að markmiði að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að efla sig í mannauðsmálum.
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir er með MA í Human Resource Management frá University of Westminster. Guðrún starfaði áður sem sérfræðingur í mannauðsmálum hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún hefur unnið sem ráðgjafi í mannauðsmálum og var starfsmannastjóri og sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands á árunum 2002 - 2015 en starfaði áður hjá Baugi sem verkefnisstjóri og sérfræðingur í mannauðsmálum.
Hildur Halldórsdóttir er með MA í mannauðsstjórnun og BA í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hildur starfaði áður sem mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands og var verkefnastjóri á starfsmannasviði Háskóla Íslands á árunum 2007-2016. Þá hefur Hildur starfað við markaðs- og kynningarmál, m.a. hjá ÍMARK og Stöð 2. Hildur er ACC vottaður markþjálfi.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.