Staðnámskeið

Mannauðsstjórnun fyrir nýja stjórnendur


Fullbókað - Biðlisti í síma 525 4444

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 7. okt. kl. 12:30 - 16:30 og þri. 8. okt. kl. 9:00 - 13:00

8 klst.

Guðrún Guðmundsdóttir

Hildur Halldórsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 60.900 kr.
Snemmskráning til og með 27. september. Almennt verð 60.900 kr.
Námskeið

Á þessu námskeiði verður fjallað um helstu þætti mannauðsstjórnunar frá ráðningu starfsmanna til starfsloka.
 

Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust og færni nýrra stjórnenda í mannauðstengdum málum, hvort sem um er að ræða mótttöku nýrra starfsmanna eða endurgjöf og samtöl. Einnig verður fjallað um vinnustaðamenningu og erfið starfsmannamál.
 

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur munu taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennsluaðferðir eru meðal annars æfingar, dæmi og umræður.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Ráðningar og val starfsmanna.
  • Móttöku nýliða.
  • Þjálfun og starfsþróun.
  • Endurgjöf, starfsmannasamtöl, frammistöðumat.
  • Erfið starfsmannamál.
  • Mat á starfi, umbun og hvatning.
  • Vinnustaðamenningu.
  • Starfslok.

Ávinningur þinn

  • Betri þekking og færni á helstu þáttum mannauðsstjórnunar.
  • Aukið sjálfstraust sem stjórnandi til að takast á við dagleg verkefni tengd mannauðsmálum.

Fyrir hverja

Ætlað nýjum stjórnendum sem vilja öðlast meiri færni og efla sig í helstu þáttum mannauðsstjórnunar.

Nánar um kennara

Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir er með MA í Human Resource Management frá University of Westminster. Guðrún hefur undanfarin ár starfað sem sérfræðingur í mannauðsmálum hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún hefur unnið sem ráðgjafi í mannauðsmálum og var starfsmannastjóri og sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands á árunum 2002 - 2015 en starfaði áður hjá Baugi sem verkefnisstjóri og sérfræðingur í mannauðsmálum.
 

Hildur Halldórsdóttir er með MA í mannauðsstjórnun og BA í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hildur hefur undanfarin ár starfað sem mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands og var verkefnastjóri á starfsmannasviði Háskóla Íslands á árunum 2007-2016. Þá hefur Hildur starfað við markaðs- og kynningarmál, m.a. hjá ÍMARK og Stöð 2. Hildur er ACC vottaður markþjálfi.
 

Guðrún og Hildur stofnuðu nýlega fyrirtækið AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf með það að markmiði að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að efla sig í mannauðsmálum.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Mannauðsstjórnun fyrir nýja stjórnendur

Verð
60900