

Valmynd
Svanhildur Guðmundsdóttir
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku sem hafa engan grunn í tungumálinu. Á þessu námskeiði verða helstu málfræðiatriði kynnt og farið yfir orðaforða sem nýtist í daglegu lífi. Lögð verður áhersla á lesskilning, ritun stuttra texta, hlustun og tjáningu.
Á námskeiðinu er unnið á tölvu í tímum og þurfa þátttakendur að hafa tölvu meðferðis. Kennsluaðferðir á námskeiðinu eru verkefnamiðaðar og markmiðið er að nemendur séu virkir þátttakendur í eigin námi. Unnin eru fjölbreytt verkefni á kennslukerfinu Moodle, sem nemendur hafa aðgang að á meðan á námskeiðinu stendur.
Svanhildur Guðmundsdóttir er með BA-gráðu í spænsku og diplóma í kennslufræði erlendra tungumála frá Háskóla Íslands. Svanhildur hefur kennt spænsku um áratug, meðal annars í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.