Staðnámskeið

Árangursríkari starfsmannasamtöl

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim. 27. feb. kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Inga Þórisdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 29.900 kr.
Snemmskráning til og með 17. febrúar. Almennt verð 32.900 kr.
Námskeið

Athugið! Námskeiðið er í boði fjórum sinnum í vetur:

  1. Staðnámskeið, 15. október
  2. Fjarnámskeið, 22. október
  3. Staðnámskeið, 27. febrúar
  4. Fjarnámskeið, 20. mars

 

Á tímum stöðugra breytinga og áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn. Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.
 

Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni. Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Tilgang og markmið með tíðari starfsmannasamtölum.
  • Mismunandi útfærslur starfsmannasamtala.
  • Undirbúning og innleiðingu.
  • Samtalstækni og virka hlustun.
  • Markmiðasetningu og eftirfylgni.
  • Endurgjöf og hrós.

Ávinningur þinn

  • Aukin þekking á mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala.
  • Hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi sem hægt er að byrja strax að vinna með.
  • Betri samtalstækni og hlustun.
  • Aukin hæfni í að leiða starfsmannasamtöl.
  • Aukin hæfni í að veita endurgjöf.

Fyrir hverja

Fyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.

Nánar um kennara

Inga Þórisdóttir starfar sem stjórnendaþjálfi í fyrirtæki sínu Via Optima. Áður starfaði Inga innan fjármálageirans í rúm tuttugu ár og hefur hún víðtæka stjórnunarreynslu. Inga hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að eiga árangursrík starfsmannasamtöl með áherslu á heiðarlega endurgjöf og nýtingu styrkleika hvers og eins. Inga tók þátt í að innleiða tíðari starfsmannasamtöl á fyrri vinnustað með góðum árangri.

Inga er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og er alþjóðlega vottaður NLP Master Coach markþjálfi. Inga hefur einnig lokið diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun HÍ.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Árangursríkari starfsmannasamtöl

Verð
29900