

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 25. sept. kl. 13:00 - 17:00
Einar Birkir Einarsson
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Netglæpir hafa á undanförnum árum færst nær okkar daglega lífi og eru nú algengt fyrirbæri. Aðeins hluti þessara brota er tilkynntur, meðal annars vegna ótta brotaþola við álitshnekki eða annan ímyndarskaða. Því vaknar spurningin: Er fyrirtækið eða stofnunin þín með nægjanlegar varnir til að vernda mikilvægustu upplýsingar og gögn gegn netárásum?
Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp öflugar varnir gegn þessum ört vaxandi vágesti. Námskeiðið veitir yfirsýn yfir eðli netglæpa, birtingarmyndir þeirra í daglegu lífi og helstu veikleika í starfsemi en glæpamenn nýta sér.
Áhersla er lögð á:
Þá er lögð áhersla á að veita þátttakendum þekkingu og hagnýtar leiðbeiningar sem nýtast strax í starfi þeirra.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja og stofnana sem bera ábyrgð á viðkvæmum upplýsingum eða gögnum. Engar forkröfur eru gerðar um þekkingu á netöryggi, upplýsingatækni eða tengdu lagaumhverfi.
Einar Birkir Einarsson er með M.Sc. í rafmagnsverkfræði frá DTU í Danmörku og starfar sem sviðsstjóri stafrænnar þróunar og reksturs hjá LSR. Hann hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og sérfræðingur í upplýsingatækni hjá meðal annars Vodafone, Byr sparisjóði, Reiknistofu bankanna og fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann hefur einnig setið í Netöryggisráði og unnið að málefnum upplýsingatækni fyrir ESS, Norrænu ráðherranefndarinnar og EFTA.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.