

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 20. mars kl. 13:00 - 17:00
Einar Birkir Einarsson
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Netglæpir eru fylgifiskar fjórðu iðnbyltingarinnar og aukinnar stafvæðingar í þjónustu og viðskiptum. Einungis brot af þessum glæpum eru upprættir eða tilkynntir til lögreglu af ótta þeirra sem fyrir verða við álitshnekki eða annan ímyndarskaða. Er þitt fyrirtæki eða stofnun með varnir til að vernda mikilvægustu upplýsingar og gögn fyrir netárásum?
Á þessu námskeiði verður farið yfir hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp varnir gegn þessum ört vaxandi vágesti.
Á námskeiðinu verður farið yfir eðli netglæpa og hvernig þeir birtast í daglegu lífi okkar, auk þess sem farið verður yfir helstu veikleika í starfsemi fyrirtækja og stofnana sem netglæpamenn nýta sér. Rætt verður um hvaða þættir eru mikilvægastir varðandi varnir gegn netglæpum og hvernig raunhæft er að fyrirbyggja þá.
Farið verður yfir lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, sem gjarnan eru nefnd NIS-tilskipunin, með það að markmiði að gera hana aðgengilega og skiljanlega fyrir leikmenn. Á námskeiðinu verður farið yfir hvaða verkfæri og verklag er best í baráttunni við netglæpi.
Lögð er áhersla á að námskeiðið sé hagnýtt og að þátttakendur fái þekkingu á þessu sviði sem þeir geta nýtt sér í starfi.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja og stofnana auk starfsmanna sem bera ábyrgð á viðkvæmum upplýsingum eða gögnum. Ekki eru gerðar neinar forkröfur um ákveðna þekkingu á netöryggismálum, upplýsingatækni eða tengdu lagaumhverfi.
Einar Birkir Einarsson er með M.Sc. í rafmagnsverkfræði frá DTU í Danmörku. Hann starfar sem sviðsstjóri Stafrænnar þróunar og reksturs hjá LSR. Áður starfaði hann sem stjórnandi hjá Vodafone, Byr sparisjóði, Reiknistofu bankanna og sérfræðingur í upplýsingatæknimálum ríkisins hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Einar Birkir sat í Netöryggisráði og í nefndum á vegum ESS, Norrænu ráðherranefndarinnar og EFTA um upplýsingatækni.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.