Fjarnámskeið

Netöryggi á Íslandi

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Fim. 10. okt. kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Einar Birkir Einarsson

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 29.900 kr.
Snemmskráning til og með 1. október. Almennt verð 32.900 kr.
Námskeið

Netglæpir eru fylgifiskar fjórðu iðnbyltingarinnar og aukinnar stafvæðingar í þjónustu og viðskiptum. Einungis brot af þessum glæpum eru upprættir eða tilkynntir til lögreglu af ótta þeirra sem fyrir verða við álitshnekki eða annan ímyndarskaða. Er þitt fyrirtæki eða stofnun með varnir til að vernda mikilvægustu upplýsingar og gögn fyrir netárásum? 
Á þessu námskeiði verður farið yfir hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp varnir gegn þessum ört vaxandi vágesti.

Á námskeiðinu verður farið yfir eðli netglæpa og hvernig þeir birtast í daglegu lífi okkar, auk þess sem farið verður yfir helstu veikleika í starfsemi fyrirtækja og stofnana sem netglæpamenn nýta sér. Rætt verður um hvaða þættir eru mikilvægastir varðandi varnir gegn netglæpum og hvernig raunhæft er að fyrirbyggja þá. 
Farið verður yfir lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, sem gjarnan eru nefnd NIS-tilskipunin, með það að markmiði að gera hana aðgengilega og skiljanlega fyrir leikmenn. Á námskeiðinu verður farið yfir hvaða verkfæri og verklag er best í baráttunni við netglæpi.

Lögð er áhersla á að námskeiðið sé hagnýtt og að þátttakendur fái þekkingu á þessu sviði sem þeir geta nýtt sér í starfi.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Netglæpi og eðli þeirra.
  • NIS-tilskipunina.
  • Skipulag netöryggis á Íslandi.
  • Grunn að betri vörnum gegn netglæpum á þínum vinnustað.

Ávinningur þinn

  • Yfirsýn yfir eðli og birtingarmynd netglæpa.
  • Þekking á mikilvægustu atriðum NIS-tilskipunarinnar og hvaða áhrif hún hefur á hefðbundna vinnustaði.
  • Hæfni til að leggja grunninn að skipulögðu starfi til að byggja upp varnir gegn netglæpum á sínum vinnustað.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja og stofnana auk starfsmanna sem bera ábyrgð á viðkvæmum upplýsingum eða gögnum. Ekki eru gerðar neinar forkröfur um ákveðna þekkingu á netöryggismálum, upplýsingatækni eða tengdu lagaumhverfi.

Nánar um kennara

Einar Birkir Einarsson er með M.Sc. í rafmagnsverkfræði frá DTU í Danmörku. Hann starfar sem sérfræðingur í upplýsingatæknimálum ríkisins hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Áður starfaði hann sem stjórnandi hjá Vodafone, Byr sparisjóði og Reiknistofu bankanna. Einar Birkir situr í Netöryggisráði og í nefndum á vegum ESS, Norrænu ráðherranefndarinnar og EFTA um upplýsingatækni.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Netöryggi á Íslandi

Verð
29900