Staðnámskeið

Kærleiksrík mörk í uppeldi leikskólabarna

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 29. okt. kl. 19:00 - 22:00

3 klst.

Þórey Huld Jónsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 20.900 kr.
Snemmskráning til og með 19. október. Almennt verð 20.900 kr.
Námskeið

Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöður þess að setja börnum á leikskólaaldri mörk á kærleiksríkan máta, hagnýtar aðferðir og mikilvægi samstöðu foreldra.

Að setja börnum mörk er mikilvægur þáttur í uppeldi og námi hvers barns. Á leikskólaaldri er grunnur lagður að samskiptafærni, hegðun og líðan barna sem fylgir þeim oft á tíðum út ævina. Mikilvægt er að foreldrar séu vel í stakk búnir að takast á við þær áskoranir sem fylgja því að setja börnum á leikskólaaldri mörk, geti fylgt þeim eftir og standi saman í uppeldinu.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Fræðilega vitneskju um mikilvægi þess að setja mörk.br>
  • Hagnýtar aðferðir við að setja börnum mörk.br>
  • Hvernig viðhalda megi góðum tengslum og kærleika þegar börnum eru sett mörk.br>
  • Líkleg áhrif á hegðun og líðan barna séu þeim sett mörk á kærleiksríkan máta.br>
  • Hvernig rýna má í líklegar ástæður neikvæðrar hegðunar og hvernig sé þá hægt að bregðast við út frá því.br>

Ávinningur þinn

  • Að öðlast meira sjálfsöryggi í að setja mörk á kærleiksríkan máta.
  • Að dýpka skilning á hegðun barna á leikskólaaldri og mikilvægi þess að setja börnum mörk.
  • Að öðlast þekkingu og færni í að nýta hagnýtar aðferðir við að setja börnum mörk.
  • Að auka samstöðu foreldra og sameiginlegan skilning á hegðun barna á leikskólaaldri.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á leikskólaaldri, sem og öðrum sem koma að uppeldi þeirra.

Nánar um kennara

Þórey Huld Jónsdóttir er leikskólakennari, ásamt því að vera með BS-gráðu í sálfræði og MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf. Auk þessa hefur hún lokið ýmsum námskeiðum er varða þroska barna, tengsl, mat á þroska og kennslu. Þórey er tveggja barna móðir með rúman áratug af reynslu af leikskólastarfi og starfar nú sem aðstoðarskólastjóri. Þórey hefur réttindi sem leiðbeinandi á námskeiðinu Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar, sem heilsugæslan býður foreldrum upp á. Auk þessa hefur hún haldið ýmsa fyrirlestra um þroska barna, að setja börnum mörk, tengsl og svefn ungra barna.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Kærleiksrík mörk í uppeldi leikskólabarna

Verð
20900