Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 11. nóv. - 16. des. kl. 20:00 - 22:00 (6x)
12 klst.Illugi Jökulsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Margir töldu mikla hættu á þriðju heimsstyrjöldinni í kalda stríðinu milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna en hversu mikil var hún í raun og veru? Hvenær var hættan mest? Hvað vakti fyrir hvoru stórveldi um sig?
Á þessu námskeiði kafar Illugi Jökulsson ofan í kalda stríðið, fer yfir hvað gekk á og hvort því lauk einhvern tímann í raun og veru. Fjallað er um eftirköst heimsstyrjaldarinnar og farið vel yfir framvindu í kalda stríðinu.
Námskeið Illuga Jökulssonar eru fyrir almenning og ætluð þeim sem hafa áhuga á æsilegum sögulegum atburðum og baksviði þeirra. Illugi leggur sig fram um að útskýra atburði, strauma og stefnur þannig að engrar sérstakrar fyrirframþekkingar er krafist.
Þátttakendur þurfa aðeins að taka með sér forvitni og áhuga, annað ekki. Spurningar eru mjög velkomnar og Illugi hvetur til umræðna í hópnum um efni námskeiðsins.
Illugi Jökulsson, rithöfundur, hefur kennt fjölda námskeiða hjá Endurmenntun HÍ um söguleg og menningarleg efni - Napóleon, forseta Bandaríkjanna, Jesús frá Nasaret, Rómarkeisara, sögu Úkraínu, Winston Churchill, Hitler og Stalín.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.