Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 1., fim. 3. og þri. 8. okt. kl. 09:00 - 12:00
9 klst.Hans Olav Andersen
Endurmenntun Háskóla Íslands
Námskeið í skilvirkri notkun á VectorWorks. Sýnt er hvernig hönnunarteymi geta unnið saman að miðlægu upplýsingalíkani byggingar. Grunnmyndir, sneiðingar, útlitsteikningar og þrívíddarmyndir eru síðan búnar til úr líkaninu. Farið er yfir samræmingu og samskipti milli BIM forrita og magntöku og útgáfu teikninga.
Námskeiðið hentar einstaklingum sem hafa notað VectorWorks í einhvern tíma og vilja læra meira um þrívíddarhönnun og BIM hugsun.
Hans-Olav Andersen er Arkitekt FAI MNAL með yfir 30 ára starfsreynslu. Hann hefur rekið Teiknistofuna Tröð með Sigríði Magnúsdóttur frá árinu 1990. Hans-Olav kenndi á VectorWorks í LHÍ í 10 ár. Þá er hann beta prófari fyrir forritið og notar það daglega.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.