Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 7. nóv. kl. 19:15 - 22:15
3 klst.Elín Björk Jónasdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu hugtök í veðurfræði og veðurspám, þátttakendur fá leiðbeiningar í lestri og túlkun veðurspáa og viðvarana og læra að afla sér réttra gagna miðað við þarfir hvers og eins.
Farið verður yfir helstu hugtök í almennri veðurfræði og þau hugtök sem helst nýtast almenningi til að nýta þær upplýsingar sem liggja fyrir í veðurspám, bæði á vefnum, í sjónvarpi og útvarpi. Farið verður yfir viðvaranir, þýðingu þeirra og mismunandi áherslur. Þá verður farið í sértæka hluti eins og áhrif landslags á staðbundið veðurfar, þann tímaskala sem hægt er að nota í veðurspám og hvernig túlkun og áreiðanleiki spáa breytist með tíma.
Öflun veðurgagna og túlkun þeirra verður líka hluti námskeiðsins, bæði að sækja einfaldar mælingar og lesa úr en einnig verður farið yfir hvernig hægt er að sækja og túlka langtímaraðir nokkurra athugunarstöðva á Íslandi.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfræði og nýtist áhugaveðurfræðingum jafnt sem áhugafólki um útivist. Engar forkröfur eru gerðar.
Gott er að þátttakendur hafi fartölvu eða iPad með sér á námskeiðið, en það er ekki skilyrði.
Elín Björk Jónasdóttir er með M.Sc. próf í veðurfræði frá Háskólanum í Osló og hefur starfað á Veðurstofu Íslands í yfir 20 ár ásamt því að sinna vísindamiðlun vegna veðurs og loftslagsmála.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.