Fjarnámskeið

Vellíðan starfsfólks

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Fim. 26. sept. kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Þóra Þorgeirsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 32.900 kr.
Námskeið

Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks. Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum. Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks í því samhengi.

Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan? Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Hvað felst í vellíðan starfsfólks.
  • Þætti sem hafa áhrif á vellíðan starfsfólks.
  • Hvernig vinnustaðir og starfsfólk geta unnið að vellíðan.

Ávinningur þinn

  • Þekking og skilningur á vellíðan í starfi.
  • Þekking á helstu þáttum sem stuðla að vellíðan í vinnu.
  • Leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða vellíðan starfsfólksins þíns.

Fyrir hverja

Fyrir öll sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur og leiðtoga sem eru með mannaforráð og þau sem vilja huga að eigin vellíðan.

Nánar um kennara

Þóra Þorgeirsdóttir er lektor við Háskólann á Bifröst og sviðsstjóri þjónustusviðs Félagsbústaða. Hún er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð og vellíðan fólks í víðu samhengi.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Vellíðan starfsfólks

Verð
32900