Staðnámskeið

Tilfinningavandi og DAM-nálgun

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 21. okt. - 4. nóv. kl. 13:00 - 16:00 (3x)

9 klst.

Ragnheiður H. Eiríksd Bjarman

Gunnhildur Gunnarsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 62.900 kr.
Snemmskráning til og með 11. október. Almennt verð 62.900 kr.
Námskeið

Á námskeiðinu er fjallað um hvernig aðferðir díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) nýtast í að efla tilfinningastjórn og bæta lífsgæði einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda. Tilfinningavandi getur m.a. birst í miklum tilfinningasveiflum, samskiptavanda, sjálfsskaða og sjálfsvígshegðun, truflun á sjálfsmynd og svart-hvítri hugsun. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru meðferðaraðilar í DAM-teymi Landspítala.

 

Tilfinningavandi einkennist af alvarlegum tilfinningalegum óstöðugleika sem getur haft áhrif á öll svið lífsins og valdið mikilli þjáningu hjá einstaklingum sem hann hafa og fjölskyldum þeirra. Einstaklingar með tilfinningavanda búa við mikla þjáningu og mæta oft litlum skilningi í umhverfinu. Díalektísk atferlismeðferð (DAM) er gagnreynd meðferð við tilfinningavanda en á Landspítala er hún veitt af sérhæfðu meðferðarteymi á göngudeild lyndisraskana.

 

DAM-meðferð byggist á færniþjálfun, viðurkennandi samskiptum og núvitund. Á námskeiðinu verður fjallað um tilfinningavanda; einkennamynd, orsakir, þróun og rannsóknir. Helstu atriði og uppbygging DAM-meðferðar verður kynnt. Farið verður í grunnatriði viðurkennandi samskipta sem eru árangursrík í meðferð einstaklinga með tilfinningalegan óstöðugleika. Nokkur meðferðartæki sem geta nýst á breiðum grundvelli verða kynnt s.s. keðjugreining, streituþolsplön og færni í tilfinningastjórn.

 

Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og verklegum æfingum.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Tilfinningavanda – einkennamynd, orsakir, þróun, rannsóknir.
  • DAM-meðferð – helstu atriði og nálgun.
  • Viðurkennandi samskipti.
  • Núvitund - grunnatriði.
  • Keðjugreiningu.
  • Streituþolsplön.
  • Færni í tilfinningastjórn.

Ávinningur þinn

  • Aukin færni í nálgun og meðferðarvinnu með einstaklingum sem hafa tilfinningalegan óstöðugleika. 
  • Þekking á grunnatriðum núvitundar og gagnsemi í meðferð.
  • Grunnþekking á DAM-nálgun.
  • Grunnþekking í notkun á keðjugreiningum og streituþolsplönum.

Fyrir hverja

Fagaðila í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða skólum.

Nánar um kennara

Gunnhildur Gunnarsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún er teymisstjóri DAM-teymis á göngudeild lyndisraskana Landspítala og DAM-meðferðaraðili. 
Ragnheiður H. Eiríksd. Bjarman er geðhjúkrunarfræðingur. Hún er aðstoðardeildartstjóri á göngudeild lyndisraskana Landspítala og DAM-meðferðaraðili.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Tilfinningavandi og DAM-nálgun

Verð
62900