Staðnámskeið

Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað


Fullbókað - Biðlisti í síma 525 4444

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mið. 5. mars kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Hildur Halldórsdóttir

Guðrún Guðmundsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 29.900 kr.
Snemmskráning til og með 23. febrúar. Almennt verð 32.900 kr.
Námskeið

Góð samskipti á vinnustað eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.

Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Faglega hegðun (e. professional behaviour) á vinnustað.
  • Eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.
  • Leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að  auka starfsánægju.
  • Hvernig við getum brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.
  • Hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í  samskiptum.

Ávinningur þinn

  • Aukin vellíðan á vinnustað.
  • Betri færni í faglegum samskiptum á vinnustað.
  • Aukið sjálfstraust í samskiptum.
  • Skilningur á eðli viðbragða ásamt hegðun annarra.

Fyrir hverja

Fyrir öll þau sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.

Nánar um kennara

Guðrún og Hildur reka fyrirtækið AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf með það að markmiði að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að efla sig í mannauðsmálum.

Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir er með MA í Human Resource Management frá University of Westminster. Guðrún starfaði áður sem sérfræðingur í mannauðsmálum hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún hefur unnið sem ráðgjafi í mannauðsmálum og var starfsmannastjóri og sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands á árunum 2002 - 2015 en starfaði áður hjá Baugi sem verkefnisstjóri og sérfræðingur í mannauðsmálum.

Hildur Halldórsdóttir er með MA í mannauðsstjórnun og BA í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hildur starfaði áður sem mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands og var verkefnastjóri á starfsmannasviði Háskóla Íslands á árunum 2007-2016. Þá hefur Hildur starfað við markaðs- og kynningarmál, m.a. hjá ÍMARK og Stöð 2. Hildur er ACC vottaður markþjálfi.
 

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað

Verð
29900