Staðnámskeið

Innri úttektir fyrir stofnanir og fyrirtæki

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 30. sept. og fim. 3. okt. kl. 12:30 - 16:30

8 klst.

Kjartan John Kárason

Einar Ragnar Sigurðsson

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 66.900 kr.
Snemmskráning til og með 22. september. Almennt verð 73.600 kr.
Námskeið

Markmið námskeiðs er að þátttakendur læri að undirbúa, skipuleggja og gera innri úttektir á stjórnunarkerfi fyrirtækis og meta virkni þess.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Gerð innri úttekta á stjórnunarkerfum þar sem þátttakendur gera innri úttekt á tilbúnu fyrirtæki. Tekið er mið af nýrri útgáfu ISO 9001 staðalsins en námskeiðið gagnast jafnframt starfsmönnum fyrirtækja og stofnana sem eru með stjórnunarkerfi skv. öðrum stöðlum s.s. ÍST 85, ISO 14000, ISO 27000, ISO 22000, ISO 45000 eða ISO 17000.
  • Aðferðirnar eru kynntar með fyrirlestrum en jafnframt er lögð áhersla á verklegar æfingar.

Ávinningur þinn

  • Að kunna skil á aðferðafræði innri úttekta, skipulagningu, úttektarferli og lokum úttektar.
  • Að fá innsýn í þátt starfsfólks og stjórnenda í úttektum.

Fyrir hverja

Ætlað þeim sem annast innri úttektir á stjórnunarkerfum. Þátttakendur þurfa að hafa grunnþekkingu á gæðastjórnun og stjórnunarstöðlum s.s. ISO 9000, ÍST85, ISO 14000, ISO 22000, ISO 27001, ISO 45000 eða ISO 17000 (staðla um stjórnun gæða, jafnlaunamála, umhverfismála, matvælaöryggis, upplýsingaöryggis, vinnuöryggis eða fyrir faggilda starfsemi).

Aðrar upplýsingar

Æskilegt er að þátttakendur hafi aðgang að þeim staðli sem verið er að vinna með á þeirra vinnustað.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Innri úttektir fyrir stofnanir og fyrirtæki

Verð
66900