Staðnámskeið

Heilaheilsa og þjálfun hugans

Aðeins 4 sæti laus

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 7. og 14. okt. kl. 17:15 - 20:45

7 klst.

Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 39.900 kr.
Snemmskráning til og með 27.9. Almennt verð 43.900.
Námskeið

Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu.

Hugræn geta á við um starfsemi heilans sem gerir okkur kleift að vera virk í daglegu lífi; heima, í vinnu og í samskiptum. Áhersla á heilaheilsu hefur verið að aukast síðustu áratugina og rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi ýmissa leiða til að þjálfa heilann og viðhalda góðri heilaheilsu út lífið. Hugræn þjálfun hefur verið rannsökuð víða og er nú í boði sem meðferð fyrir ýmsa hópa.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Heilaheilsu og hugræna þætti, s.s. einbeitingu, athygli, minni og stýrifærni, og áhrif þeirra á daglegt líf.
  • Leiðir til að bæta heilbrigði heilans og lifa heilaheilsuvænu lífi. 
  • Hugræna þjálfun.
  • Hvernig á að útbúa þjálfunaráætlun til að bæta hugræna getu og meta árangurinn.

Ávinningur þinn

  • Að auka skilning á hugarstarfi.
  • Að auka innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika. 
  • Að læra fjölbreyttar leiðir til að bæta hugarstarf og heilaheilsu.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um heilaheilsu og leiðir til að þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt.

Nánar um kennara

Ólína G. Viðarsdóttir er með BA-próf og kandídatspróf í sálfræði auk þess að hafa lokið doktorsprófi í líf- og læknavísindum. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Ólína hugræna getu og áhrif hugrænnar endurhæfingar á hugræna getu, líðan og færni í daglegu lífi. Ólína er eigandi Heilaheilsu ehf. og starfar einnig sem verkefnastjóri í geðþjónustu Landspítala. Auk þess sinnir Ólína gestakennslu við Háskóla Íslands.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Heilaheilsa og þjálfun hugans

Verð
39900