Fjarnámskeið

Sálræn áföll - áfallamiðuð nálgun og þjónusta

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mið. 25. og fim. 26. sept. kl. 13:00 - 15:00

4 klst.

Sigrún Sigurðardóttir

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 29.600 kr.
Námskeið

Á þessu stutta og hnitmiðaða námskeiði er áhersla lögð á fræðslu um skilgreiningar og forvarnir sálrænna áfalla. Fjallað er um helstu einkenni sem geta komið fram sem og líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar. Skoðaðar eru þær leiðir sem einstaklingar geta valið við úrvinnslu og meðferð. Fjallað er um áhrif sálrænna áfalla á samfélagið og leiðir til að stuðla að skilvirkari og árangursríkari þverfaglegri þjónustu. Einnig er skoðað er hvað felst í áfallamiðaðri nálgun og þjónustu.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Skilgreiningar og einkenni áfalla.
  • Afleiðingar áfalla fyrir heilsufar og líðan.
  • Heildræna nálgun og viðbrögð við áföllum.
  • Áfallamiðaða þjónustu.

Ávinningur þinn

  • Þekkir skilgreiningar og einkenni hjá einstaklingum sem hafa orðið fyrir áföllum.
  • Þekkir afleiðingar áfalla fyrir heilsufar og líðan og getur þannig brugðist við í starfi og leik.
  • Veist hvernig á að nálgast einstaklinga eftir áföll og kannt rétt viðbrögð með heildrænni nálgun.
  • Þekkir ferli áfallamiðaðrar nálgunar og innleiðingar í kerfið.

Fyrir hverja

Heilbrigðisstarfsfólk, starfsfólk í skólum, viðbragðsaðila, starfsfólk í dómskerfinu.

Nánar um kennara

Dr. Sigrún Sigurðardóttir er prófessor við Háskólann á Akureyri. Hún er með doktorspróf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Sigrún hefur haldið fjölda fyrirlestra um áföll og ofbeldi, afleiðingar þess og úrræði.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Sálræn áföll - áfallamiðuð nálgun og þjónusta

Verð
29600