Staðnámskeið

París

- líf og lystisemdir
Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 3. maí
Almennt verð 25.200 kr. 22.900 kr.

Mán. 13. og mið. 15. maí kl. 20:00 - 22:00

4 klst.

Gérard Lemarquis, stundakennari við Hugvísindasvið HÍ

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Farið verður í sögu Parísar og skoðaðar myndir og kort sem koma þátttakendum að góðum notum í eiginlegri Parísarferð. Þátttakendur munu fá glögga mynd af ólíkum hverfum borgarinnar og upplifa líf og lystisemdir hennar gegnum líflega frásögn Gérard Lemarquis.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta verður farið í sögu Parísar og áhersla lögð á hverfi sem voru miðpunktur borgarinnar á mismunandi tímum. Latínuhverfið, Le Marais (Mýrina), Le Louvre, Le Palais Royal, Les grands boulevards (frá République til Óperunnar), Montmartre, Montparnasse, Saint-Gérmain des Prés, Les Halles og La Bastille. Velt verður upp spurningunum: Af hverju breytist tískan? Hvernig og af hverju verður nýtt hverfi miðpunktur lista og bóhemlífs?

Í seinni hluta verða farnir nokkrir leiðangrar um París. Sýndarveruleiki verður settur á svið með aðstoð korta og annarra gagna. Staldrað verður við þekkta og lítt þekkta staði. Hugmyndin er að síðar geti þátttakendur notað kort og önnur gögn námskeiðsins við raunverulegar aðstæður í eiginlegri Parísarferð.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

París

Verð
25200

<span class="fm-plan">Fari&eth; ver&eth;ur &iacute; s&ouml;gu Par&iacute;sar og sko&eth;a&eth;ar myndir og kort sem koma &thorn;&aacute;tttakendum a&eth; g&oacute;&eth;um notum &iacute; eiginlegri Par&iacute;sarfer&eth;. &THORN;&aacute;tttakendur munu f&aacute; gl&ouml;gga mynd af &oacute;l&iacute;kum hverfum borgarinnar og upplifa l&iacute;f og lystisemdir hennar gegnum l&iacute;flega fr&aacute;s&ouml;gn G&eacute;rard Lemarquis.</span>